Stofuskrá

Verð á Stofuskrá

Eitt mánaðarverð fyrir stofuna: 14.990 kr. án VSK með einum notanda. Sjúkraskrá, dagatal, netbókun, tölvupóstáminningar, rukkun og samþykki eru innifalin. Engin binding og 14 dagar án endurgjalds.

Uppfært 17. nóvember 2026

Verð eftir fjölda notenda

StofaÁ mánuði án VSKMeð VSK
1 notandi14.990 kr.18.588 kr.
2 notendur16.980 kr.21.055 kr.
3 notendur18.970 kr.23.523 kr.
5 notendur22.950 kr.28.458 kr.

Hver viðbótarnotandi kostar 1.990 kr. á mánuði án VSK. Móttökuritari telst notandi.

Hvað er innifalið?

  • Rafræn sjúkraskrá með komusniðmátum fyrir hverja stétt, breytingasögu og aðgangsskrá
  • Dagatal, netbókun, biðlisti og endurteknir tímar
  • Áminningar og tilkynningar í tölvupósti
  • Rukkun skjólstæðinga, kvittanir og dagsuppgjör
  • Samþykki undirritað á spjaldtölvu
  • Myndir, skjöl og hljóðupptökur, allt dulkóðað
  • Mínar síður fyrir skjólstæðinga
  • Heimaæfingar, rafræn forskráning og bréf og vottorð
  • Matskvarðar með línuritum, tilvísanir og biðlisti sem fyllir lausa tíma
  • Móttökuspjald fyrir spjaldtölvu í afgreiðslu
  • Innflutningur skjólstæðinga og útflutningur allra gagna
  • Aðstoð við uppsetningu

SMS-áminningar

SMS eru rukkuð eftir notkun: 12 kr. án VSK á hvert skeyti. Eitt skeyti er 160 stafir, eða 70 með íslenskum stöfum, og lengri texti telst sem fleiri skeyti. Dæmi: 200 áminningar á mánuði í einu skeyti kosta 2.400 kr. án VSK. Nánar um SMS-áminningar.

Hvernig er rukkað?

  • 14 daga prufutími án greiðslukorts. Allt sem þú skráir er áfram til staðar.
  • Engin sjálfvirk rukkun: þú velur sjálf(ur) að halda áfram í áskrift. Annars lokast aðgangurinn án rukkunar og gögnin haldast.
  • Í áskrift er rukkað mánuð í senn, fyrirfram. Uppsögn gildir út mánuðinn.
  • SMS bætast við næsta reikning eftir á. SMS á prufutíma eru ekki rukkuð.
  • Engin binding. Við uppsögn færðu öll gögn stofunnar afhent.

Spurningar og svör

Þarf greiðslukort til að prófa?

Nei. Þú skráir stofuna og byrjar strax. Þú ert aldrei rukkuð/rukkaður nema þú veljir sjálf(ur) að halda áfram í áskrift eftir 14 daga prufutímann.

Er binditími?

Nei. Áskriftin er mánuð í senn og þú getur hætt hvenær sem er. Þú tekur öll gögnin með þér.

Er verðið með VSK?

Verðin eru án VSK. Virðisaukaskattur, 24%, bætist við á reikningi.

Prófaðu Stofuskrá á þinni stofu

14 dagar án endurgjalds. Ekkert greiðslukort. Uppsetningin tekur nokkrar mínútur.