Stofuskrá

Að skipta um sjúkraskrárkerfi

Flestar litlar stofur geta byrjað í Stofuskrá sama dag. Skjólstæðingalistinn er fluttur inn úr Excel eða CSV, og eldri sjúkraskrár eru varðveittar eins og lög gera ráð fyrir.

Uppfært 17. nóvember 2026

Í stuttu máli

  • Skjólstæðingar (kennitala, nafn, sími, netfang) eru fluttir inn úr Excel eða CSV, með forskoðun áður en nokkuð er vistað.
  • Sjúkragögn eru ekki flutt sjálfkrafa á milli kerfa. Eldri sjúkraskrár eru varðveittar sem útflutningur úr fyrra kerfi og má hengja við sjúkraskrá í Stofuskrá.
  • Prufutíminn er 14 dagar án greiðslukorts, nægur tími til að keyra bæði kerfin samhliða.

Skref fyrir skref

  1. Sæktu gögnin úr fyrra kerfi. Biddu um skjólstæðingalista sem Excel eða CSV, og útflutning allra sjúkraskráa (til dæmis PDF). Fyrri framleiðandi er vinnsluaðili þinn og á að afhenda gögnin.
  2. Skráðu stofuna. Stofnaðu aðgang á app.stofuskra.is og veldu stéttina, þá fylgja komusniðmát sem henta.
  3. Flyttu inn skjólstæðinga. Undir Stofan → Flytja inn skjólstæðinga velurðu skrána, skoðar forskoðun og staðfestir. Skjólstæðingar sem eru þegar skráðir eru ekki tvískráðir.
  4. Settu upp daglega vinnu. Vinnutími, gjaldskrá, SMS-áminningar og netbókun. Fyrstu skrefin birtast á forsíðunni og merkjast sjálfkrafa.
  5. Bjóddu starfsfólki. Hver starfsmaður fær eigin aðgang með tvíþættri auðkenningu.
  6. Varðveittu eldri sjúkraskrár. Geymdu útflutninginn úr fyrra kerfi á öruggum stað. Ef þú vilt hafa eldri gögn við höndina má hengja PDF við komu viðkomandi skjólstæðings, þá er það dulkóðað í Stofuskrá.
  7. Láttu skjólstæðinga vita ef bókunartengill eða símanúmer fyrir afbókanir breytist.

Úr pappír í rafræna sjúkraskrá

Ef stofan hefur skráð á pappír er einfaldast að byrja að skrá allar nýjar komur rafrænt frá ákveðnum degi. Pappírsskrár eru varðveittar áfram samkvæmt lögum um sjúkraskrár, og eldri upplýsingar sem skipta máli fyrir meðferð má skrá í fyrstu komu skjólstæðings í nýja kerfinu. Frá 1. desember 2026 þarf sjúkraskráin að vera stafræn, sjá rafræn sjúkraskrá 2026.

Spurningar og svör

Geturðu flutt sjúkragögnin úr gamla kerfinu fyrir mig?

Nei. Sjúkragögn eru á ábyrgð stofunnar og eru ekki flutt sjálfkrafa á milli kerfa. Skjólstæðingalisti er fluttur inn úr Excel eða CSV; eldri sjúkraskrár eru varðveittar sem útflutningur úr fyrra kerfi.

Hvaða snið þarf skjólstæðingalistinn að vera á?

CSV eða Excel (.xlsx) með fyrirsögnum í fyrstu línu: kennitala, nafn, sími og netfang. Kennitala og nafn eru nauðsynleg. Mest 5.000 raðir í einu.

Get ég notað bæði kerfin samhliða?

Já. Prufutíminn er 14 dagar og engin áskrift hefst nema þú staðfestir hana sjálf(ur).

Prófaðu Stofuskrá á þinni stofu

14 dagar án endurgjalds. Ekkert greiðslukort. Uppsetningin tekur nokkrar mínútur.