Stofuskrá

Öryggi og persónuvernd · uppfært 17. nóvember 2026

Svona verndar Stofuskrá sjúkraskrárnar

Stofan ber ábyrgð á sjúkraskránum sínum og á rétt á að vita nákvæmlega hvernig farið er með þær. Hér er allt sem skiptir máli, á mannamáli.

Í stuttu máli

  • Tvíþætt auðkenning fyrir alla, ekki bara stjórnendur.
  • Engu eytt, allt skráð. Gagnagrunnurinn sjálfur kemur í veg fyrir eyðingu sjúkraskrárgagna.
  • Dulkóðuð afrit á klukkustundar fresti, geymd á öðrum stað og endurheimt prófuð mánaðarlega.
  • Allt innan EES. Hýsing í Helsinki og vinnslusamningur fylgir áskriftinni.

Innskráning og aðgangur

  • Tvíþætt auðkenning er skylda fyrir alla notendur, með sex stafa kóða úr auðkennisappi. Hver kóði gildir aðeins einu sinni.
  • Lykilorð eru geymd með Argon2id. Aðgangi er læst tímabundið eftir fimm rangar tilraunir.
  • Sjálfvirk útskráning eftir 30 mínútna óvirkni, sem stofan getur lengt upp í 8 klukkustundir. Engin lota er lengri en 12 klukkustundir.
  • Hver starfsmaður hefur eigin aðgang og hlutverk. Móttaka sér dagatal og greiðslur en ekki sjúkraskrár.
  • Skjólstæðingur getur bannað tilteknum starfsmanni aðgang að sinni sjúkraskrá, og bannið er framfylgt í kerfinu sjálfu.

Skráning og rekjanleiki

  • Skráð er hver opnaði sjúkraskrá, hvenær og hvað var gert. Yfirlitið má afhenda skjólstæðingi.
  • Undirritaðar komur eru læstar. Leiðrétting geymir fyrri útgáfu, ástæðu og nafn þess sem breytti.
  • Engu er eytt. Kerfið tengist gagnagrunninum sem notandi sem hefur ekki heimild til að eyða, og gagnagrunnurinn sjálfur hafnar eyðingu sjúkraskrárgagna.
  • Ekki er hægt að breyta aðgangsskrá né breytingasögu eftir á.

Dulkóðun og hýsing

  • Öll umferð fer um dulkóðaða tengingu (TLS 1.2 eða nýrra, HSTS).
  • Myndir, skjöl, hljóðupptökur og undirskriftir eru dulkóðaðar á netþjóninum og afhentar aðeins innskráðum notendum stofunnar.
  • Gögn hverrar stofu eru aðskilin. Allur lestur sjúkragagna fer í gegnum einn hluta kerfisins sem síar alltaf á stofu notandans.
  • Hýsing hjá Hetzner í Helsinki í Finnlandi, innan EES.

Afritun og endurheimt

  • Gagnagrunnurinn er afritaður á klukkustundar fresti og allt kerfið, með skrám, á hverri nóttu.
  • Afritin eru dulkóðuð áður en þau fara af netþjóninum og geymd á aðskildu geymslusvæði innan EES í allt að sex mánuði.
  • Heilleiki afritanna er staðfestur vikulega, og í hverjum mánuði er nýjasta afritið endurheimt í aðskilinn gagnagrunn til að sannreyna að það virki.
  • Skrifleg endurheimtaráætlun er til fyrir bæði bilun í gagnagrunni og tap á netþjóni.

Rekstur og vöktun

  • Öryggisuppfærslur á netþjóni eru settar inn sjálfvirkt. Eldveggur leyfir aðeins vefumferð, og innskráning á netþjón er aðeins með SSH-lyklum.
  • Vöktun allan sólarhringinn: diskur, gámar, SSL-skírteini, eldveggur og afritun. Viðvörun berst strax í tölvupósti, og í SMS ef vandinn er alvarlegur.
  • Hver breyting á kóða fer í gegnum sjálfvirkar prófanir á aðskilnaði stofa og óbreytanleika gagna, og er prófuð í aðskildu prófunarumhverfi án raunverulegra gagna áður en hún fer í rekstur.
  • Áminningar í SMS og tölvupósti innihalda aldrei heilsufarsupplýsingar.

Undirvinnsluaðilar

Stofan er ábyrgðaraðili sjúkraskránna og Vefhjálp vinnsluaðili. Þessir aðilar vinna með gögn fyrir hönd Vefhjálpar:

AðiliLandHvað
Hetzner Online GmbHÞýskalandHýsing netþjóns, gagnagrunns og dulkóðaðra afrita í Helsinki í Finnlandi
Nova hf.ÍslandSMS-áminningar og innskráningarkóðar: símanúmer og texti skeytis
Lettermint B.V.HollandTölvupóstur: netfang og texti
Já hf.ÍslandUppfletting í þjóðskrá: kennitala, og nafn og lögheimili til baka
Signicat (Dokobit) og Auðkenni hf.ESB / ÍslandRafræn skilríki: innskráning starfsfólks og undirritun samþykkis (símanúmer eða kennitala og texti skjalsins)

Engar sjúkraskrárfærslur fara til undirvinnsluaðila. Tengi stofan Stofuskrá við annað kerfi, til dæmis bókunarkerfi Noona, er sá aðili vinnsluaðili stofunnar sjálfrar.

Þjónusta og viðbrögð

ÞjónustutímiVirka daga kl. 9–17
Kerfið liggur niðriBrugðist við innan 2 klst. á þjónustutíma. Vöktun lætur vita allan sólarhringinn.
ÖryggisbresturStofu tilkynnt innan 24 klst. svo hún geti metið tilkynningu til Persónuverndar (72 klst.) og landlæknis
Breyting á undirvinnsluaðilumTilkynnt með minnst 30 daga fyrirvara
Ef rekstri er hættMinnst 90 daga fyrirvari, öll gögn afhent á lesanlegu formi og síðan eytt

Skilmálarnir í heild, með vinnslusamningi: Skilmálar og vinnslusamningur.

Spurningar og svör

Getur starfsfólk Vefhjálpar lesið sjúkraskrár?

Nei. Kerfisstjórn Stofuskrár sýnir stofur, notendur og reikninga en engin sjúkragögn, og upphlaðnar skrár eru dulkóðaðar. Vefhjálp opnar ekki sjúkraskrár nema stofan óski þess skriflega, til dæmis við aðstoð við innflutning.

Hvað gerist ef netþjónninn bilar?

Gagnagrunnurinn er afritaður á klukkustundar fresti og allt kerfið daglega, dulkóðað, á annan stað innan EES. Endurheimt er prófuð sjálfvirkt í hverjum mánuði. Ef kerfið liggur niðri er brugðist við innan tveggja klukkustunda á þjónustutíma.

Hvar eru gögnin geymd?

Á netþjóni Hetzner Online GmbH í Helsinki í Finnlandi, innan EES. Afrit eru líka geymd hjá Hetzner í Helsinki, á aðskildu geymslusvæði. Engin gögn eru flutt út fyrir EES.

Fá aðrir aðilar aðgang að gögnunum?

Aðeins undirvinnsluaðilarnir sem taldir eru upp hér að ofan, og aðeins að því sem þarf: Nova fær símanúmer og texta SMS-áminningar, Lettermint netfang og texta tölvupósts, Já kennitölu við uppflettingu í þjóðskrá og Signicat texta samþykkis sem skjólstæðingur undirritar. Enginn þeirra fær sjúkraskrárfærslur.

Þurfa allir starfsmenn tvíþætta auðkenningu?

Já. Í Stofuskrá er tvíþætt auðkenning skylda fyrir alla notendur, ekki bara stjórnendur. Kóðinn kemur úr auðkennisappi í símanum, til dæmis Google Authenticator eða Microsoft Authenticator.

Hvernig tilkynni ég öryggisveikleika?

Sendu póst á gudni@vefhjalp.is með „Öryggi“ í efnislínu. Við staðfestum móttöku innan tveggja virkra daga. Notaðu aldrei raunveruleg sjúkragögn við prófanir.

Prófaðu Stofuskrá á þinni stofu

14 dagar án endurgjalds. Ekkert greiðslukort. Uppsetningin tekur nokkrar mínútur.