Sjúkraskrá fyrir þína stétt
Komusniðmát sem passa við vinnuna þína. Matskvarðar eins og VAS, ODI, PHQ-9 og GAD-7 birtast á línuriti yfir meðferðina. Myndir og skjöl fylgja komunni.
Rafræn sjúkraskrá fyrir sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk
Stofuskrá er íslenskt sjúkraskrárkerfi með dagatali, netbókun og SMS-áminningum. Byggt fyrir sjúkraþjálfara, sálfræðinga og aðrar stofur sem vilja einfalt kerfi sem uppfyllir lög um sjúkraskrár.
Ekkert greiðslukort. Þú getur flutt gögnin út hvenær sem er.
Með komusniðmátum fyrir
Tímar dagsins, hver er mættur og hvaða komur bíða undirritunar, á einum skjá.
Sjá fleiri skjámyndir: dagatal, sjúkraskrá, netbókun og áminningar
Engar viðbætur eða aukaáskriftir. Allt fylgir með frá fyrsta degi.
Komusniðmát sem passa við vinnuna þína. Matskvarðar eins og VAS, ODI, PHQ-9 og GAD-7 birtast á línuriti yfir meðferðina. Myndir og skjöl fylgja komunni.
Dags-, viku- og mánaðarsýn með dálki fyrir hvern starfsmann. Endurteknir tímar, biðlisti og vinnutími. Dragðu tíma til að færa hann.
Skjólstæðingar velja lausan tíma á bókunarsíðu stofunnar. Þú samþykkir beiðnina og tíminn birtist í dagatalinu. Ekkert fer í sjúkraskrá án þín.
Áminningar með SMS og tölvupósti á þeim tíma sem þú velur, og biðlisti sem býður lausa tíma sjálfkrafa þegar einhver afbókar. Í skeytunum eru aldrei heilsufarsupplýsingar.
Settu saman æfingaáætlun úr safninu og sendu tengil í SMS. Skjólstæðingurinn sér æfingarnar, prentar þær og merkir hvaða daga hann gerði þær.
Nýir skjólstæðingar svara heilsufarsspurningum, matskvörðum og undirrita samþykki í símanum áður en þeir koma. Fyrsti tíminn fer í meðferð.
Greinargerð til læknis, vottorð og lokaskýrsla fyllast sjálfkrafa úr sjúkraskránni. Undirritað og prentað eða vistað sem PDF.
Komur á mánuði, nýting tíma hjá hverjum starfsmanni og hversu margir mæta ekki. Talningar, engin sjúkragögn.
Fluttu skjólstæðingalistann inn úr Excel eða CSV á nokkrum mínútum. Og ef þú vilt fara annað tekurðu öll gögnin með þér.
Sjúkraskrá á að vera rafræn, örugg og rekjanleg. Stofuskrá var hönnuð út frá lögum nr. 55/2009 um sjúkraskrár og reglugerð nr. 550/2015, ekki aðlöguð að þeim eftir á.
Frá og með 1. desember 2026 verður skylt að færa stafræna sjúkraskrá, samkvæmt lögum nr. 81/2025.
Þú borgar fyrir stofuna og starfsfólkið. Dagatal, netbókun og tölvupóstáminningar fylgja með.
Fyrir sjúkraþjálfara, sálfræðinga, talmeinafræðinga, iðjuþjálfa, næringarfræðinga og aðra sem veita heilbrigðisþjónustu á eigin stofu, allt frá einum starfsmanni upp í nokkra. Fótaaðgerðafræðingar nota systurkerfið Fótaskrá.
Já. Hver starfsmaður hefur sína stétt, til dæmis sjúkraþjálfari og sálfræðingur á sömu stofu. Hver og einn sér komusniðmát sinnar stéttar fyrst, og sniðmát hinna stéttanna á stofunni eru einum smelli frá. Dagatal, netbókun, skjólstæðingar og rukkun eru sameiginleg.
14.990 kr. á mánuði án VSK fyrir stofuna, og einn notandi er innifalinn. Hver viðbótarnotandi kostar 1.990 kr. á mánuði og hvert SMS 12 kr.. Netbókun, tölvupóstáminningar, rukkun, samþykki og útflutningur gagna eru innifalin. Verð og dæmi.
Kerfið var hannað út frá lögum nr. 55/2009 um sjúkraskrár og reglugerð nr. 550/2015: breytingasaga í stað eyðingar, aðgangsskrá, takmörkun aðgangs, tvíþætt auðkenning, afrit sjúkraskrár fyrir skjólstæðing og útflutningur. Ábyrgðin á skráningunni sjálfri er áfram hjá heilbrigðisstarfsmanninum.
Já. Stofuskrá er sjúkraskrárkerfi, tímabókunarkerfi og dagbók stofunnar í einu kerfi: dagatal fyrir allt starfsfólk, netbókun á vef stofunnar, biðlisti og SMS-áminningar. Lestu um bókunarkerfið.
Já. Þú setur upp gjaldskrá, rukkar eftir tíma, skráir greiðslumáta og prentar eða sendir kvittun í tölvupósti. Dagsuppgjör sýnir greiðslur eftir greiðslumáta og þú getur sótt CSV-skrá fyrir bókhaldið.
Já. Stofa sem notar Noona getur tengt það við Stofuskrá með einum smelli í stillingum. Bókanir úr Noona skila sér sjálfkrafa inn í dagatalið — nýjar bókanir, breytingar og afbókanir — og skjólstæðingar eru paraðir á kennitölu. Núverandi dagbók og SMS-áminningar breytast ekki.
14 dagar án endurgjalds. Ekkert greiðslukort. Uppsetningin tekur nokkrar mínútur.