Stofuskrá

Leiðarvísir · uppfært 17. nóvember 2026

Rafræn sjúkraskrá verður skylda 1. desember 2026

Hvað breyttist með lögum nr. 81/2025, hverjir þurfa að bregðast við og hvernig stofan getur verið tilbúin í tíma.

Í stuttu máli

  • Frá og með 1. desember 2026 verður skylt að færa stafræna sjúkraskrá.
  • Skyldan kemur með lögum nr. 81/2025 um breytingu á lögum nr. 55/2009 um sjúkraskrár. Lögin tóku gildi 17. desember 2025.
  • Embætti landlæknis hvetur veitendur heilbrigðisþjónustu til að skrá í sjúkraskrárkerfi sem uppfyllir kröfur um öryggi gagna og aðgangsstýringu.
  • Ábyrgðaraðilar sjúkraskráa bera ábyrgð á innra eftirliti og er skylt að tilkynna brot gegn lögunum til landlæknis.

Hvað breyttist með lögum nr. 81/2025?

Alþingi samþykkti breytingar á lögum nr. 55/2009 um sjúkraskrár og tóku þær gildi 17. desember 2025. Markmiðið er að auka skilvirkni í heilbrigðisþjónustu, styðja við stafræna þróun og bæta öryggi sjúklinga. Helstu breytingarnar eru:

  • Stafræn sjúkraskrá verður skylda frá og með 1. desember 2026.
  • Víðari skilgreining: gögn sem verða til við veitingu stafrænnar heilbrigðisþjónustu teljast líka sjúkraskrárupplýsingar.
  • Afrit til sjúklings: sjúklingur eða forráðamaður hans fær afrit af eigin sjúkraskrá, en ekki beinan aðgang. Frá 1. desember 2026 nær það líka til upplýsinga sem hafðar eru eftir öðrum en sjúklingi eða heilbrigðisstarfsmönnum.
  • Innra eftirlit: ábyrgðar- og umsjónaraðilar sjúkraskráa bera ábyrgð á innra eftirliti með skráningu og meðferð sjúkraskrárupplýsinga.
  • Tilkynningarskylda: skylt er að tilkynna brot gegn lögum um sjúkraskrár til landlæknis. Landlækni er heimilt að kæra brot og skylt að vísa meiri háttar brotum til lögreglu.

Hverjir þurfa að bregðast við?

Allir sem veita heilbrigðisþjónustu og færa sjúkraskrá, þar á meðal sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar, sálfræðingar, talmeinafræðingar, iðjuþjálfar, næringarfræðingar og fótaaðgerðafræðingar. Þau sem í dag skrá á pappír, í Word eða Excel þurfa að færa skráninguna í sjúkraskrárkerfi fyrir 1. desember 2026.

Gátlisti fyrir stofuna

  1. Veldu sjúkraskrárkerfi sem uppfyllir kröfur um öryggi gagna og aðgangsstýringu, með skráningu á aðgangi og breytingasögu.
  2. Gerðu vinnslusamning við þann sem hýsir kerfið, og athugaðu hvar gögnin eru geymd.
  3. Settu upp aðgang fyrir hvern starfsmann með tvíþættri auðkenningu. Enginn ætti að deila aðgangi.
  4. Ákveddu hvernig eldri gögn eru varðveitt og hvort skjólstæðingalisti er fluttur inn í nýja kerfið.
  5. Komdu á innra eftirliti: hver fer yfir aðgangsskrá, hve oft, og hvernig brot eru tilkynnt til landlæknis.
  6. Gakktu úr skugga um að rekstur stofunnar sé tilkynntur til embættis landlæknis. Spurt og svarað á island.is.
  7. Byrjaðu tímanlega. Það tekur nokkrar vikur að venjast nýju kerfi, og betra er að vera kominn af stað fyrir 1. desember.

Hvernig Stofuskrá mætir kröfunum

KrafaÍ Stofuskrá
Stafræn skráning í öruggu kerfiÖll skráning er rafræn í sjúkraskrárkerfi með aðgangsstýringu. Gögn eru hýst innan EES.
AðgangsstýringHver notandi hefur eigin aðgang. Stjórnandi getur lokað á aðgang einstakra starfsmanna að einstökum skjólstæðingum.
Skráning aðgangsSkráð er hver opnaði sjúkraskrá og hvenær. Yfirlitið er hægt að afhenda skjólstæðingi.
Engu eyttUndirrituð koma er læst. Leiðrétting geymist í breytingasögu með ástæðu og nafni þess sem breytti.
Afrit til sjúklingsAfrit sjúkraskrár er prentað eða vistað sem PDF úr kerfinu.
Innra eftirlitAðgangsskrá, atburðaskrá og dagleg áminning um óundirritaðar komur styðja við innra eftirlit stofunnar.
Örugg innskráningTvíþætt auðkenning fyrir alla notendur. Myndir, skjöl og undirskriftir eru dulkóðuð.
AfritunDulkóðuð afrit á klukkustundar fresti, geymd á öðrum stað innan EES. Endurheimt prófuð mánaðarlega.

Þetta er almenn samantekt, ekki lögfræðiráðgjöf. Ábyrgð á skráningu er hjá heilbrigðisstarfsmanni og ábyrgðaraðila sjúkraskrár.

Spurningar og svör

Gildir skyldan líka um sjálfstætt starfandi einyrkja?

Breytingin er almenn: frá og með 1. desember 2026 verður skylt að færa stafræna sjúkraskrá. Hún á við um þá sem veita heilbrigðisþjónustu og færa sjúkraskrá, óháð stærð stofu.

Dugar að halda sjúkraskrá í Word eða Excel?

Embætti landlæknis hvetur veitendur til að skrá í sjúkraskrárkerfi sem uppfyllir kröfur um öryggi gagna og aðgangsstýringu. Almenn skjöl í Word eða Excel halda hvorki utan um hver opnaði skrána né breytingasögu, og erfitt er að stýra aðgangi að einstökum skjólstæðingum.

Hvað með eldri sjúkraskrár á pappír?

Skyldan snýr að skráningu frá og með 1. desember 2026. Eldri sjúkraskrár þarf áfram að varðveita á öruggan hátt. Leitaðu leiðbeininga hjá embætti landlæknis um varðveislu eldri gagna.

Má skjólstæðingur fá aðgang að sjúkraskránni sinni?

Lögin heimila að sjúklingur eða forráðamaður hans fái afrit af eigin sjúkraskrá, en ekki beinan aðgang að kerfinu. Frá 1. desember 2026 nær rétturinn líka til upplýsinga sem hafðar eru eftir öðrum en sjúklingi eða heilbrigðisstarfsmönnum.

Heimildir

Vertu tilbúin(n) fyrir 1. desember

14 dagar án endurgjalds. Ekkert greiðslukort. Uppsetningin tekur nokkrar mínútur.