Stofuskrá

Um Stofuskrá

Íslensk sjúkraskrá, smíðuð fyrir litlar stofur sem vilja einfalt kerfi sem uppfyllir lög um sjúkraskrár.

Hver stendur að baki?

Stofuskrá er smíðuð og rekin á Íslandi af Vefhjálp, hugbúnaðarstofu Guðna Más Ægissonar. Vefhjálp rekur líka Fótaskrá, sjúkraskrá fyrir fótaaðgerðafræðinga, og Stofuskrá byggir á reynslunni af henni.

Af hverju Stofuskrá?

Sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk þarf sjúkraskrá sem er örugg og uppfyllir lög, en líka dagatal, áminningar og rukkun. Oft eru þetta mörg kerfi eða pappír og Excel. Stofuskrá setur þetta á einn stað, á íslensku, á einu verði.

Hvernig er öryggið?

  • Tvíþætt auðkenning fyrir alla notendur.
  • Gögn hverrar stofu eru aðskilin, og gagnagrunnurinn sjálfur kemur í veg fyrir að sjúkraskrárgögnum sé eytt eða breytt eftir undirritun.
  • Myndir, skjöl og undirskriftir eru dulkóðuð. Öll umferð fer um dulkóðaða tengingu.
  • Gögnin eru afrituð dulkóðuð á klukkustundar fresti á annan stað, og endurheimt er prófuð mánaðarlega.
  • Hýsing innan EES og vinnslusamningur fylgir áskriftinni.
  • Áminningar innihalda aldrei heilsufarsupplýsingar.

Allt um öryggi og persónuvernd í Stofuskrá

Hafðu samband

Sendu póst á gudni@vefhjalp.is. Við svörum á íslensku og förum gjarnan yfir kerfið með þér.

Prófaðu Stofuskrá á þinni stofu

14 dagar án endurgjalds. Ekkert greiðslukort. Uppsetningin tekur nokkrar mínútur.