Stofuskrá

Sjúkraskrá fyrir sjúkraþjálfara

Stofuskrá er rafræn sjúkraskrá og dagatal fyrir sjúkraþjálfara á eigin stofu eða í litlum hópi. Skráðu komuna á meðan þú vinnur, bókaðu meðferðarlotur í einu og láttu kerfið minna skjólstæðinga á tímann.

Komusniðmát fyrir sjúkraþjálfara

Sniðmátin fylgja með frá fyrsta degi. Þú skráir í reiti sem passa við vinnuna og getur líka notað almenna komu.

Sjúkraþjálfun

  • Ástæða komu
  • Verkir á VAS-kvarða 0–10
  • Hreyfiferill
  • Meðferð
  • Mat og áætlun

Almenn koma

  • Ástæða komu
  • Skoðun
  • Meðferð
  • Mat og áætlun

Gert fyrir daglega vinnu sjúkraþjálfara

Meðferðarlotur í einu

Bókaðu til dæmis tvisvar í viku í sex vikur í einni aðgerð. Kerfið lætur vita ef tími rekst á annan.

Dagatal fyrir alla á stofunni

Dálkur fyrir hvern sjúkraþjálfara, vinnutími og frí, biðlisti og dragðu tíma til að færa hann.

Heimaæfingar í símann

Veldu æfingar úr safninu, stilltu sett og endurtekningar og sendu skjólstæðingnum tengil í SMS. Hann sér æfingarnar í símanum, prentar þær og merkir hvaða daga hann gerði þær. <a href="/heimaaefingar">Nánar um heimaæfingar</a>.

Tilvísanir og hlutur SÍ

Skráðu tilvísun með fjölda tíma og gildistíma. Kerfið telur tímana og varar við áður en þú bókar umfram tilvísun. Hlutur Sjúkratrygginga reiknast á kvittunina.

ODI, NDI og VAS á línuriti

Matskvarðar eru skráðir í hverri komu, eða af skjólstæðingnum sjálfum í <a href="/forskraning">forskráningu</a>, og birtast sem línurit yfir meðferðina. <a href="/matskvardar">Nánar um matskvarða</a>.

Greinargerð til læknis á mínútu

Sniðmát fyrir greinargerð og lokaskýrslu fyllist sjálfkrafa með komum, tilvísun og matskvörðum. Þú lagar textann, undirritar og prentar eða vistar sem PDF. <a href="/bref-og-vottord">Nánar</a>.

Auk þess: breytingasaga í stað eyðingar, aðgangsskrá, tvíþætt auðkenning, dulkóðuð gögn hýst innan EES, netbókun og tímabókunarkerfi, SMS-áminningar, tölfræði og útflutningur allra gagna. Allir eiginleikar

Spurningar og svör

Er Stofuskrá tengd Sjúkratryggingum Íslands?

Hlutur Sjúkratrygginga reiknast á kvittun skjólstæðings og þú færð uppgjör fyrir hvert tímabil. Rafræn sending reikninga beint til Sjúkratrygginga er ekki komin enn. Hafðu samband ef það skiptir stofuna þína máli.

Get ég sent skjólstæðingi heimaæfingar?

Já. Þú velur æfingar úr innbyggðu safni eða ykkar eigin æfingum með myndum og myndböndum, og skjólstæðingurinn fær tengil í SMS. Hann getur líka prentað æfingarnar, og þú sérð hvaða daga hann merkti þær gerðar.

Hentar þetta fyrir stofu með marga sjúkraþjálfara?

Já. Hver starfsmaður fær eigin aðgang og dálk í dagatalinu. Einn notandi er innifalinn í verðinu og hver viðbótarnotandi kostar 1.990 kr. á mánuði án VSK.

Önnur fög: Sálfræði, Talmeinafræði, Iðjuþjálfun, Næringarfræði. Fótaaðgerðafræðingar nota systurkerfið Fótaskrá.

Prófaðu Stofuskrá á þinni stofu

14 dagar án endurgjalds. Ekkert greiðslukort. Uppsetningin tekur nokkrar mínútur.