Stofuskrá

Sjúkraskrá fyrir talmeinafræðinga

Stofuskrá er rafræn sjúkraskrá fyrir talmeinafræðinga. Sniðmát fyrir mat og þjálfun, samþykki forráðamanns á spjaldtölvu og áminningar sem foreldrar fá í síma.

Komusniðmát fyrir talmeinafræðinga

Sniðmátin fylgja með frá fyrsta degi. Þú skráir í reiti sem passa við vinnuna og getur líka notað almenna komu.

Mat

  • Ástæða komu
  • Svið
  • Mál- og þroskasaga
  • Prófanir og niðurstöður
  • Mat
  • Þjálfunaráætlun

Þjálfun

  • Markmið tímans
  • Æfingar og verkefni
  • Framvinda
  • Heimaæfingar
  • Athugasemdir

Gert fyrir daglega vinnu talmeinafræðinga

Samþykki forráðamanns

Foreldri eða forráðamaður undirritar á spjaldtölvu og tengsl við barnið eru skráð með undirskriftinni.

Þjálfunarlotur

Bókaðu vikulega tíma yfir heila önn í einu og haltu biðlista fyrir ný börn.

Heimaæfingar fyrir foreldra

Búðu til ykkar eigin æfingar með lýsingu, mynd eða myndbandi og sendu foreldrum tengil í SMS. Þau sjá æfingarnar í símanum og merkja hvaða daga þær voru gerðar. <a href="/heimaaefingar">Nánar</a>.

Áminningar til foreldra

SMS eða tölvupóstur á þeim tíma sem þú velur, með tengli til að afbóka með fyrirvara.

Auk þess: breytingasaga í stað eyðingar, aðgangsskrá, tvíþætt auðkenning, dulkóðuð gögn hýst innan EES, netbókun og tímabókunarkerfi, SMS-áminningar, tölfræði og útflutningur allra gagna. Allir eiginleikar

Spurningar og svör

Hver getur undirritað samþykki fyrir barn?

Sá sem undirritar skrifar nafn sitt og tengsl við barnið, til dæmis foreldri eða forráðamaður. Textinn sem var undirritaður er vistaður með undirskriftinni.

Get ég flutt inn lista yfir börn sem ég er með?

Já. Skjólstæðingalistinn er fluttur inn úr Excel eða CSV og kerfið sýnir forskoðun áður en nokkuð er vistað.

Önnur fög: Sjúkraþjálfun, Sálfræði, Iðjuþjálfun, Næringarfræði. Fótaaðgerðafræðingar nota systurkerfið Fótaskrá.

Prófaðu Stofuskrá á þinni stofu

14 dagar án endurgjalds. Ekkert greiðslukort. Uppsetningin tekur nokkrar mínútur.