Svona lítur Stofuskrá út
Skjámyndir úr sýnistofu sjúkraþjálfara: dagatal, sjúkraskrá, netbókun og áminningar. Nöfnin eru tilbúin og kennitölur faldar.
Dagurinn á einum skjá
Þegar þú opnar Stofuskrá sérðu tíma dagsins, hver er mættur, næsta tíma og komur sem bíða undirritunar. Einn smellur opnar skjólstæðinginn eða skráir komuna.
Dagatal fyrir alla á stofunni
Dags-, viku- og mánaðarsýn með dálki fyrir hvern starfsmann, vinnutíma og biðlista. Dragðu tíma til að færa hann eða breyta lengdinni. Nánar um bókunarkerfið.
Skjólstæðingurinn og sagan
Öll saga skjólstæðingsins á einum stað: komur, bókaðir tímar, greiðslur og samþykki. Leitaðu í sögunni, sæktu afrit sjúkraskrár og sjáðu hver hefur opnað hana.
Matskvarðar og árangur
Skráðu VAS, ODI, NDI, PHQ-9 eða GAD-7 og sjáðu þróunina á línuriti. PHQ-9 og GAD-7 reiknast úr svörunum, og tilvísun telur tímana sem eftir eru.
Heimaæfingar á mínútu
Veldu æfingar úr safninu, stilltu skammtinn og sendu skjólstæðingnum tengil í SMS. Hann sér æfingarnar í símanum og merkir hvaða daga hann gerði þær. Nánar um heimaæfingar.
Forskráning fyrir fyrsta tíma
Skjólstæðingurinn svarar spurningum stofunnar og matskvörðum heima í símanum og undirritar samþykki. Svörin bíða í sjúkraskránni þegar hann mætir. Nánar um forskráningu.
Bréf og vottorð
Greinargerð til læknis, vottorð og lokaskýrsla fyllast sjálfkrafa úr sjúkraskránni. Undirritað og prentað eða vistað sem PDF með haus stofunnar. Nánar.
Sjúkraskráin sjálf
Komusniðmát fyrir hverja stétt, hér sjúkraþjálfun með verkjakvarða, hreyfiferli og meðferð. Undirrituð koma er læst, og leiðréttingar geymast í breytingasögu með nafni og ástæðu.
Netbókun á vef stofunnar
Skjólstæðingar velja þjónustu og lausan tíma á bókunarsíðu stofunnar. Þú samþykkir hverja beiðni áður en hún fer í dagatalið.
SMS-áminningar sem þú stjórnar
Áminning daginn áður og aftur samdægurs, með þínum texta. Kerfið sýnir lengd og verð hvers skeytis á meðan þú skrifar, og stingur upp á styttri texta. Nánar um áminningar.
Allar stillingar á einum stað
Starfsfólk og aðgangur, netbókun, SMS, lokanir og íslenskir frídagar, biðlisti sem fyllir lausa tíma, gjaldskrá og áskrift.
Í símanum og spjaldtölvunni
Stofuskrá er vefkerfi sem virkar jafn vel í síma og tölvu. Ekkert þarf að setja upp, og þú getur skráð komu í heimavitjun eða kíkt á daginn á leiðinni í vinnuna.


Prófaðu Stofuskrá á þinni stofu
14 dagar án endurgjalds. Ekkert greiðslukort. Uppsetningin tekur nokkrar mínútur.