Algengar spurningar um Stofuskrá
Verð, lög um sjúkraskrár, öryggi, netbókun, áminningar og hvernig á að byrja.
Hvað er Stofuskrá?
Stofuskrá er íslensk rafræn sjúkraskrá með dagatali, netbókun, SMS- og tölvupóstáminningum, rukkun og undirritun samþykkis. Hún er gerð fyrir sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk og litlar stofur, og keyrir í vafra á tölvu, spjaldtölvu og síma.
Er Stofuskrá líka bókunarkerfi?
Já. Stofuskrá er sjúkraskrárkerfi, tímabókunarkerfi og dagbók stofunnar í einu kerfi: dagatal fyrir allt starfsfólk, netbókun á vef stofunnar, biðlisti og SMS-áminningar. Lestu um bókunarkerfið.
Er hægt að tengja Noona?
Já. Stofa sem notar Noona getur tengt það við Stofuskrá með einum smelli í stillingum. Bókanir úr Noona skila sér sjálfkrafa inn í dagatalið — nýjar bókanir, breytingar og afbókanir — og skjólstæðingar eru paraðir á kennitölu. Núverandi dagbók og SMS-áminningar breytast ekki.
Fyrir hverja er Stofuskrá?
Fyrir sjúkraþjálfara, sálfræðinga, talmeinafræðinga, iðjuþjálfa, næringarfræðinga og aðra sem veita heilbrigðisþjónustu á eigin stofu, allt frá einum starfsmanni upp í nokkra. Fótaaðgerðafræðingar nota systurkerfið Fótaskrá.
Getur stofa með fleiri en eina stétt notað Stofuskrá?
Já. Hver starfsmaður hefur sína stétt, til dæmis sjúkraþjálfari og sálfræðingur á sömu stofu. Hver og einn sér komusniðmát sinnar stéttar fyrst, og sniðmát hinna stéttanna á stofunni eru einum smelli frá. Dagatal, netbókun, skjólstæðingar og rukkun eru sameiginleg.
Hvað kostar Stofuskrá?
14.990 kr. á mánuði án VSK fyrir stofuna, og einn notandi er innifalinn. Hver viðbótarnotandi kostar 1.990 kr. á mánuði og hvert SMS 12 kr.. Netbókun, tölvupóstáminningar, rukkun, samþykki og útflutningur gagna eru innifalin. Verð og dæmi.
Er prufutími?
Já, 14 dagar án endurgjalds og ekkert greiðslukort þarf til að byrja. Engin rukkun fer fram nema þú veljir að halda áfram í áskrift, og allt sem þú skráir er áfram til staðar.
Uppfyllir Stofuskrá lög um sjúkraskrár?
Kerfið var hannað út frá lögum nr. 55/2009 um sjúkraskrár og reglugerð nr. 550/2015: breytingasaga í stað eyðingar, aðgangsskrá, takmörkun aðgangs, tvíþætt auðkenning, afrit sjúkraskrár fyrir skjólstæðing og útflutningur. Ábyrgðin á skráningunni sjálfri er áfram hjá heilbrigðisstarfsmanninum.
Hvenær verður rafræn sjúkraskrá skylda?
Frá og með 1. desember 2026, samkvæmt lögum nr. 81/2025 sem breyttu lögum um sjúkraskrár. Lestu um breytingarnar og hvað stofan þarf að gera.
Hvar eru gögnin geymd?
Á netþjóni í Helsinki í Finnlandi, innan EES. Gögn hverrar stofu eru aðskilin, myndir, skjöl og undirskriftir eru dulkóðuð og öll umferð fer um dulkóðaða tengingu. Dulkóðuð afrit eru tekin á klukkustundar fresti og geymd á öðrum stað. Vinnslusamningur fylgir áskriftinni. Nánar um öryggi.
Geta skjólstæðingar bókað tíma sjálfir?
Já. Stofan fær eigin bókunarsíðu þar sem skjólstæðingar velja þjónustu og lausan tíma. Stofan samþykkir hverja beiðni áður en hún fer í dagatalið, og ekkert fer í sjúkraskrá án hennar.
Hvernig virka SMS-áminningar?
Stofan velur hvenær áminning fer, til dæmis daginn áður, og skrifar eigin texta. Í áminningum eru aldrei heilsufarsupplýsingar, aðeins stofa, dagur og tími, og skjólstæðingur getur fengið tengil til að afbóka með fyrirvara. Hvert skeyti kostar 12 kr. án VSK. Eitt skeyti rúmar 160 stafi án íslenskra stafa en 70 stafi með þeim, og lengri texti telst sem fleiri skeyti. Kerfið sýnir lengd og verð hvers texta áður en hann er vistaður, og hægt er að senda án íslenskra stafa til að halda áminningu í einu skeyti. Áminningar í tölvupósti eru innifaldar.
Hafa skjólstæðingar aðgang að Mínum síðum?
Já, ef stofan kveikir á því. Skjólstæðingur skráir sig inn með kennitölu og 6 stafa kóða sem berst í SMS eða tölvupósti. Þar sér hann tímana sína, getur afbókað með fyrirvara, sótt kvittanir, séð samþykki, stillt SMS-áminningar og óskað eftir afriti af sjúkraskrá.
Getur móttökuritari unnið í kerfinu án aðgangs að sjúkraskrá?
Já. Hlutverkið Móttaka sér dagatal allra, bókanir, biðlista, skjólstæðingalista og greiðslur, en hvorki komur, skrár né afrit sjúkraskrár. Aðgangurinn er líka lokaður á þjóninum sjálfum.
Get ég rukkað skjólstæðinga í kerfinu?
Já. Þú setur upp gjaldskrá, rukkar eftir tíma, skráir greiðslumáta og prentar eða sendir kvittun í tölvupósti. Dagsuppgjör sýnir greiðslur eftir greiðslumáta og þú getur sótt CSV-skrá fyrir bókhaldið.
Getur skjólstæðingur undirritað samþykki?
Já, á spjaldtölvu eða síma í móttökunni. Undirskriftin er dulkóðuð og textinn sem var undirritaður er vistaður með henni. Samþykki má afturkalla, en það er áfram skráð í sjúkraskrá.
Er Stofuskrá tengd Sjúkratryggingum Íslands?
Hlutur Sjúkratrygginga reiknast á kvittun skjólstæðings, sérstakt komugjald eftir hópi, og þú færð uppgjör fyrir hvert tímabil. Tilvísanir eru skráðar með fjölda tíma og gildistíma. Rafræn sending reikninga beint til Sjúkratrygginga er ekki komin enn.
Get ég sent skjólstæðingum heimaæfingar?
Já. Veldu æfingar úr innbyggðu safni eða ykkar eigin með myndum og myndböndum, stilltu skammtinn og sendu tengil í SMS. Skjólstæðingurinn sér æfingarnar í símanum, getur prentað þær og merkir hvaða daga hann gerði þær. Nánar um heimaæfingar.
Geta skjólstæðingar fyllt út upplýsingar fyrir fyrsta tíma?
Já, með rafrænni forskráningu. Skjólstæðingur fær tengil, staðfestir sig með fæðingardegi og svarar spurningum stofunnar, matskvörðum eins og PHQ-9 eða ODI og undirritar samþykki heima. Svörin fara beint í sjúkraskrána. Nánar um forskráningu.
Get ég skrifað vottorð og greinargerðir í kerfinu?
Já. Sniðmát fyrir greinargerð til læknis, vottorð og lokaskýrslu fyllast sjálfkrafa með nafni, komum, tilvísun og matskvörðum. Þú lagar textann, undirritar og prentar eða vistar sem PDF, og getur sýnt bréfið á Mínum síðum skjólstæðings. Nánar.
Er hægt að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum?
Ekki enn. Innskráning er með lykilorði og sex stafa kóða úr auðkennisappi í símanum (tvíþætt auðkenning), fyrir alla notendur.
Get ég flutt skjólstæðinga úr öðru kerfi?
Já. Skjólstæðingalistinn er fluttur inn úr Excel eða CSV og kerfið sýnir forskoðun áður en nokkuð er vistað. Ef þú þarft að flytja eldri sjúkraskrár, hafðu samband og við finnum leið.
Get ég tekið gögnin með ef ég hætti?
Já. Stjórnandi getur hvenær sem er sótt öll gögn stofunnar í einni skrá. Þið eigið gögnin.
Þarf að setja eitthvað upp?
Nei. Stofuskrá er vefkerfi sem virkar í nýlegum vafra á tölvu, spjaldtölvu og síma.
Hver stendur að Stofuskrá?
Stofuskrá er smíðuð og rekin á Íslandi af Vefhjálp, sem rekur einnig Fótaskrá fyrir fótaaðgerðafræðinga. Meira um Stofuskrá.
Fæ ég aðstoð við að byrja?
Já. Sendu póst á gudni@vefhjalp.is og við förum yfir uppsetninguna með þér: starfsfólk, vinnutíma, netbókun og áminningar.
Prófaðu Stofuskrá á þinni stofu
14 dagar án endurgjalds. Ekkert greiðslukort. Uppsetningin tekur nokkrar mínútur.