Stofuskrá

Sjúkraskrá fyrir iðjuþjálfa

Stofuskrá er rafræn sjúkraskrá fyrir iðjuþjálfa á eigin stofu. Sniðmát með sviðum iðju, matstækjum og mati á frammistöðu og ánægju.

Komusniðmát fyrir iðjuþjálfa

Sniðmátin fylgja með frá fyrsta degi. Þú skráir í reiti sem passa við vinnuna og getur líka notað almenna komu.

Iðjuþjálfun

  • Ástæða komu
  • Svið iðju
  • Matstæki
  • Frammistaða (1–10)
  • Ánægja með frammistöðu (1–10)
  • Íhlutun
  • Mat og áætlun

Gert fyrir daglega vinnu iðjuþjálfa

Frammistaða og ánægja

Skráðu mat skjólstæðingsins á frammistöðu og ánægju á kvarðanum 1–10 og sjáðu þróunina í sögunni.

Myndir og skjöl

Hengdu myndir og skjöl við komuna, til dæmis af hjálpartækjum eða aðstæðum. Allt er dulkóðað.

Dagatal og áminningar

Vinnutími, endurteknir tímar, netbókun og áminningar með SMS eða tölvupósti.

Heimaæfingar og vottorð

Sendu skjólstæðingi heimaæfingar í símann og skrifaðu vottorð eða greinargerð sem fyllist sjálfkrafa úr sjúkraskránni. <a href="/heimaaefingar">Heimaæfingar</a> · <a href="/bref-og-vottord">Bréf og vottorð</a>.

Auk þess: breytingasaga í stað eyðingar, aðgangsskrá, tvíþætt auðkenning, dulkóðuð gögn hýst innan EES, netbókun og tímabókunarkerfi, SMS-áminningar, tölfræði og útflutningur allra gagna. Allir eiginleikar

Spurningar og svör

Get ég farið í heimavitjun og skráð í símanum?

Já. Stofuskrá er vefkerfi sem virkar í síma, spjaldtölvu og tölvu. Ekkert þarf að setja upp.

Hvað ef ég vil önnur matstæki?

Reiturinn fyrir matstæki er frjáls texti, og flýtitextar hjálpa þér að skrá sömu niðurstöðuform aftur og aftur.

Önnur fög: Sjúkraþjálfun, Sálfræði, Talmeinafræði, Næringarfræði. Fótaaðgerðafræðingar nota systurkerfið Fótaskrá.

Prófaðu Stofuskrá á þinni stofu

14 dagar án endurgjalds. Ekkert greiðslukort. Uppsetningin tekur nokkrar mínútur.