Matskvarðar sem sýna árangurinn
PHQ-9, GAD-7, Oswestry (ODI), Neck Disability Index (NDI) og VAS-verkjakvarði í sjúkraskránni. Stigin reiknast sjálfkrafa, alvarleikastig birtist og þróunin sést á línuriti yfir meðferðina.
Uppfært 17. nóvember 2026
Kvarðarnir
- PHQ-9 (þunglyndiseinkenni) og GAD-7 (kvíði): níu og sjö spurningar, stig og alvarleikastig reiknuð sjálfkrafa. Svar við spurningu 9 í PHQ-9 er merkt sérstaklega svo áhætta sé metin.
- ODI (Oswestry, færniskerðing vegna bakverkja) og NDI (vegna hálsverkja), skráð sem heildarskor.
- VAS verkjakvarði 0–10.
Skjólstæðingurinn svarar heima
Í forskráningu svarar skjólstæðingurinn kvörðunum í símanum fyrir fyrsta tímann, og niðurstöðurnar fara beint á línuritið. Þú skráir svo næstu mælingar í tímunum.
Í greinargerðum og afriti
Nýjustu niðurstöður og breyting frá upphafi fara sjálfkrafa inn í greinargerð til læknis og lokaskýrslu. Niðurstöðum er ekki breytt eftir á; röng skráning er afturkölluð með ástæðu, og allt fylgir afriti sjúkraskrár.
Spurningar og svör
Eru notaðar staðfestar íslenskar útgáfur kvarðanna?
Kerfið sýnir stuttar lýsingar spurninga og reiknar stigin. Notaðu staðfesta íslenska útgáfu listans við fyrirlögn eins og fagleg viðmið segja til um.
Get ég bætt við öðrum matskvörðum?
Hafðu samband ef stofan notar aðra kvarða. Þangað til má skrá önnur matstæki í komusniðmátum.
Prófaðu Stofuskrá á þinni stofu
14 dagar án endurgjalds. Ekkert greiðslukort. Uppsetningin tekur nokkrar mínútur.