Trúnaður í áminningum
SMS og tölvupóstur nefna aðeins stofu, dag og tíma. Aldrei ástæðu komu eða neitt um meðferðina.
Stofuskrá er rafræn sjúkraskrá fyrir sálfræðinga á eigin stofu. Sniðmát fyrir fyrsta viðtal og eftirfylgd, ströng aðgangsstýring og áminningar sem segja aldrei neitt um ástæðu tímans.
Sniðmátin fylgja með frá fyrsta degi. Þú skráir í reiti sem passa við vinnuna og getur líka notað almenna komu.
SMS og tölvupóstur nefna aðeins stofu, dag og tíma. Aldrei ástæðu komu eða neitt um meðferðina.
Á stofu með fleiri en einum sálfræðingi getur stjórnandi lokað á aðgang einstakra starfsmanna að einstökum skjólstæðingum.
Skráð er hver opnaði sjúkraskrá og hvenær. Skjólstæðingur getur fengið yfirlit og afrit af sinni sjúkraskrá.
Skjólstæðingur svarar spurningum þínum, PHQ-9 og GAD-7 og undirritar upplýst samþykki heima í símanum áður en hann kemur. <a href="/forskraning">Nánar um forskráningu</a>.
Auk þess: breytingasaga í stað eyðingar, aðgangsskrá, tvíþætt auðkenning, dulkóðuð gögn hýst innan EES, netbókun og tímabókunarkerfi, SMS-áminningar, tölfræði og útflutningur allra gagna. Allir eiginleikar
Aðeins starfsfólk sömu stofu, og stjórnandi getur lokað á aðgang einstakra starfsmanna að einstökum skjólstæðingum. Allur aðgangur er skráður og sést í aðgangsyfirliti.
Já. Skjólstæðingur getur svarað PHQ-9 og GAD-7 heima í forskráningu fyrir fyrsta viðtal, eða þú skráir svörin í viðtalinu. Stigin reiknast sjálfkrafa og þróunin birtist á línuriti. Svar við spurningu 9 í PHQ-9 er merkt sérstaklega. Nánar um matskvarða.
Önnur fög: Sjúkraþjálfun, Talmeinafræði, Iðjuþjálfun, Næringarfræði. Fótaaðgerðafræðingar nota systurkerfið Fótaskrá.
14 dagar án endurgjalds. Ekkert greiðslukort. Uppsetningin tekur nokkrar mínútur.